Gleðilegt ár og allt það sjitt!
En það eru nokkrar spurningar sem eru í hausnum á mér (og svör, svona til að minna menn á hluti) og kannski eruð þið líka með spurningar sem þið bætið við í athugasemdir.
Þetta post er sennilega algjör vitleysa eða kannski ekki…..og þegar ég les hann yfir þá skil ég hann varla. Fokk it!
1. Næsti leikur? – Sunnudaginn 11. jan kl.14:00 á móti Árvaki (eða er það vakRI ?….wait a minute WHO CARES?!)
2. Næsta æfing? – Einhver að svara því fyrir mig.
3. Næsta partý? – Jæja! Nú er komið nóg! Við erum 11 eða eitthvað álíka í þessu liði, kannski fleiri ef taldir eru með æfingafélagar eins og Kiddi Grensás og Snakki, og mesti fjöldi leikmanna í Brokeyjarpartý hefur verið 6 eða 7. Kannski 8 ef Actionary partýið hér um árið er tekið með, sem var alveg geðveikt skemmtilegt. Næsta partý er planað laugardaginn 31. janúar. Þá eigum við leik við Glóa og tilvalið að hittast um kvöldið og drekka bjór, vodka í orkudrykkjum og/eða Southern Comfort í Breezer ala Hemmi Karvels. Leikurinn er snemma svo Arnar getur rakað á sér lappirnar, Hermaurinn farið í ljós, Frikki pússað gleraugun og ég teipað gervibarta á mig fyrir kvöldið. Edrú ógildir miðann! Svona til að hvetja menn til að mæta þá er held ég málið að menn kannski leggi í púkk 500-1000+ krónur svo bartenderinn, sjarmurinn og sjentilmennið Hemmi geti gert einhverja flotta bollu og keypt eitthvað snakk og gotterí með því. Ég hef skoðað síðuna hjá Leiknismönnum og þar mæta allir í nánast öll partýin. Og ef einhver ætlar að spila “Ég Á Barn”-spilinu og kemst ekki í partý eins og þeir, þá virkar það ekki því þeir eiga nokkrir börn í því liði líka og þeir halda fleiri partý en við. Og svo er mánuður í þetta partý okkar svo það er hægt að redda pössun á þessum tíma eða þá þeir sem eiga glæný börn (eins og ég) eða þá að þið viljið/þurfið að skilja betri helminginn eftir heima þá hafið þið tíma til að dekra við kellinguna og fá útivistarleyfi (sem ég er búinn að redda). Það á eftir að finna stað til að halda partýið, en það verður kannski í Blöndubakkanum. Út af frumburðinum þá er ekki hægt að halda það hjá mér, enda á ég skilið smá break þar sem ég hef haldið öll Brokeyjarpartýin og tvær af þremur uppskeruhátíðum hafa verið haldnar heima hjá mér. Arnar Logi hefur við og við talað um innflutningspartý síðan hann flutti í Álfkonuhvarfið 1992 en ekkert orðið af því. Sjáum til hvað gerist. Auðvitað væri svo horft á leikinn sem hafði verið spilaður fyrr um daginn og vídeóin sem ég hef gert úr fyrri leikjum tímabilsins frumsýnd.
4. Af hverju er Frikki á lausu? – God only knows!!!!!
Endilega komið með athugasemdir, spurningar og/eða svör.
Love you guys! Miss you lots!

Pössum bara að verða ekki jafn fullir og þessir gæjar…..bara meira fullir.
1.01.2009 at 21:55
Ég er til í partý til að fagna sigrinum…. langt síðan maður hefur fengið að sjá tilþrif á vídjó…. já og Gleðilegt nýtt ár strákar… Brokey í úrvalsdeildina 2010!!!
2.01.2009 at 00:40
Eigum við að sækja um að fá að hoppa upp um deild?
2.01.2009 at 15:19
Hjalti… stærðfræðin eitthvað að bregðast þér? verðum í fyrstu deild 2009-2010 og svo í úrvalsdeild 2010-2011. en til að svara spurningu þinni þá er æfing á næsta þriðjudag, s.s. 6. janúar
Varðandi partýstand þá er ég sammála Hjalta. Léleg mæting hefur einkennt þetta hingað til. En nú er góður fyrirvari og tími fyrir alla að fá pössun og verða sér úti um partýdressið. Ég veit ekkert hvenær ég held þetta innflutnings/búinn að búa þarna í 3 ár partý.
2.01.2009 at 15:51
Frikki er að tala um úrvalsdeild á næsta ári sem er 2010. Ég var að tala um að ef við komumst upp eftir þetta tímabil þá þurfum við að hoppa upp um deild til þess að markmið Frikka náist. Kannski var það Frikki sem ruglaði í stærðfræðinni.
2.01.2009 at 15:51
ég held að aðal ástæða fyrir ástandinu á frikka að hann sé of feitur….
2.01.2009 at 16:13
Er hægt að fá íslenska þýðingu á textanum við lið 3?
2.01.2009 at 17:16
Þýðing eftir bestu getu við svefngalsa-málinu mínu í lið 3.
“Það er partý laugardaginn 31. janúar. Ekkert kjaftæði og allir mæta. Drekkum áfengi og förum í sleik. Hemmi er hot….og þá meina ég haaaawwwwt! Það verður stuð og engar afsakanir leyfðar þegar partýið er planað með svona miklum fyrirvara. Sprechen Sie Deutsch! Ach ja! Bitte schön!”
Vona að þetta hafi hjálpað þér Lýður minn.
2.01.2009 at 18:23
ööö hjalti ef við komumst upp núna 2008-2009 og svo aftur næsta tímabil, 2009-2010, þá byrjum við í úrvalsdeild í sept eða okt 2010….. reyndu nú að hugsa smá.
2.01.2009 at 18:45
Góð þýðing.
2.01.2009 at 19:09
og hvergi talaði Frikki um næsta ár. Hann sagði einungis “Brokey í úrvalsdeildina 2010″ hvergi minnst á neitt næsta ár.
Hvað er eiginlega að þér!!!!
2.01.2009 at 19:35
Touché Frikki og Arnar….well played!
Ég trúi því ekki að ég saknaði eineltisins sem ég verð fyrir í þessu liði og á þessari síðu. Heilar 3-4 vikur án þess er bara ekki hægt.
3.01.2009 at 03:21
Sælir strákar. Mér finnst Frikki nú bara mjög heitur ef ég á að segja alveg eins og er. Sá hann í leik í vetur með ykkur og fann svo nafnið hans og hef verið að reyna finna hann á öllum stöðum. Hann er bara svo heitur. Luv á þig Frikki<3<3
4.01.2009 at 17:00
HaHa hjalti mjög fyndið