Daginn,

Fyrsti leikur tímabilsins verður háður á skaganum í kvöld þar sem Brokey mætir ÍA. Fyrsti leikur síðasta tímabils var einnig móti ÍA og tapaðist hann en stefnan er tekinn á sigur í kvöld þó svo við verðum eitthvað fámennir.

Riðillinn er kominn á “fulla” ferð og Mostri byrjaði gríðarlega vel á móti Árvak.

Nr. Félag Leik U T Stig Nett Stig
1. Mostri 1 1 0 101:36 65 2
2. Reynir S. 1 1 0 95:75 20 2
3. Brokey 0 0 0:0 0 0
4. ÍA 0 0 0:0 0 0
5. Umf. Glói 1 0 1 75:95 -20 0
6. Árvakur 1 0 1 36:101 -65 0

Við ætlum okkur sigur í kvöld og byrjum tímabilið sterkt.

Endilega reynið að taka ykkur saman um bíla fyrir kvöldið. Ég fer alveg örugglega á bíl og þá er pláss fyrir allavega 3 með mér.

Brokey hefur tekið ákvörðun um að vera ekki með í RVK mótinu um næstu helgi vegna stutts fyrirvara og manneklu.

Pes-mótið hans Hjalta fer fram skv. áætlun geri ég ráð fyrir. Endilega mætið í þessa gríðarmiklu skemmtun og vil ég benda fólki á auglýsingu hér neðar á síðunni sem svarar öllum fyrirspurnum.

Leider
Popparinn