Sælir,
Finnst vanta enn einn pistil um hugleiðingar varðandi næsta tímabil.
Æfingar
Æfingatímarnir verða þeir sömu og síðasta vetur. Þriðjudaga og fimmtudaga kl 22-23 í Kársnesskóla. Eins og Óli sagði, þetta er það seint á kvöldin að maður ætti ekki að vera gera nokkurn skapaðan hlut á þessum tíma nema mæta á æfingar. Æfingarnar byrja fyrsta þriðjudag í september, s.s. 2. september. Ég mæti ekki með kladdann fyrstu vikuna meðan menn eru að koma sér inn í tímana en strax í vikunni á eftir mæti ég með leikmannasamninginn og læt menn skrifa undir við hátíðlega athöfn og eftir það verður kladdinn kominn í gang og menn miskunnarlaust sektaðir eftir því. Reglur og sektir má sem fyrr kynna sér í [reglur og sektir] flipanum.
Leikmenn
Þeir leikmenn sem verða pottþétt með eru í stafrófsröð:
Arnar
Frikki
Hemmi
Hjalti
Hrannar
Jakob
Kjartan
Laugi
Óli
Reynar
Suddi
Er ég að gleyma einhverjum? erum við virkilega bara 11? fannst við vera orðnir alveg 13. Ef ég er að gleyma einhverjum þá biðst ég afsökunar á því og bæti viðkomandi inn við fyrsta tækifæri. En ef ekki þá langar mig að biðja ykkur að finna 2 leikmenn við fyrsta tækifæri. Ætlar Höddi ekki að vera með?
Spurning um að hafa einhver try-outs? getum við ekki gert sjónvarpsþátt? The Player!?! nei það gæti svert nafn hins frábæra þáttar sem Kjartan var í hér á Sirkus um árið. “don’t hate the player, hate the game” AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA
Er eitthvað meira um þetta að segja? Menn vita að undirbúningstímabilið er mjög stutt þar sem leikirnir byrja í október og er ætlast til að menn séu komnir í svona þokkalegt form þegar fyrstu æfingarnar byrja í september. Það vill enginn vera jarðýtan!
Leider
Popparinn
9.08.2008 at 13:58
Til hamingju Arnar og Hulda með frumburðinn. Hvenar opnast skiptimarkaðurinn? Ég er með einn sem hefur hlotið afbragðs uppeldi, er vinnusamur með eindæmum og ann hvorki sér né öðrum augnabliks hvíldar. Skipti í boði á sléttu að fengnu læknisvottorði. Annars hafa orðið einhver mistök, búningur nr. 14 hefur minnkað og það þýðir aðeins eitt, mér hefur verið úthlutað einhverri barnastærð og mun ég við fyrsta tækifæri ferðast með hann til Arnars og færa frumburðinum að gjöf. Ég geri ráð fyrir að þessi ferð gæti hafist á mánudag þegar hjartalyfin og súrefniskúturinn skila sér. Kveðja, Kæliklefinn F.K.A. Ísskápurinn
10.08.2008 at 00:52
Haha
10.08.2008 at 23:59
það gæti verið að ég mæti seint á æfingar í september og október að sökum skóla… en ég mun samt reyna að mæta á réttum tím….. svo má auðvitað enginn gleyma að koma með pakka á fyrstu æfinguna þar sem að ég á afmæli þann dag, finnst það bara réttlátt….. en nei Höddi ætlar ekki að vera með og þurfum við að finna einhvern til að fylla upp í skarðið sem hann skilur eftir sig,veit einhver um einhvern? ……hvenær er annars síðasti séns að skipt um lið?
12.08.2008 at 14:38
Gauti hafði áhuga á að sprikla með þegar hann er á landinu, eins og áður hefur komið fram. Hann er líklega að gleymast úr þessum lista.
13.08.2008 at 19:10
Já alveg rétt. Held að Gauti fljúgi inn! Við erum samt þá bara 12, og þar af 2 sem verða ekki með 100% vegna vinnu sinnar. Verðum að finna allavega 1 einn, helst stóran, til að vera með í vetur.
26.08.2008 at 13:37
Hvernig væri nú að þjálfarinn setti inn hérna nokkur orð um fyrstu æfinguna sem er núna eftir slétta viku? hvernig verður mætingin og er eitthvað að frétta af leikmannamarkaðinum?
27.08.2008 at 14:55
Ég ætla að reyna að mæta með einhvern með mér….. svo var ég að pæla hvort það væri ekki sniðugt að hafa refsingar í ár fyrir að tapa leikjum á æfingum…. kanski eitt suicide fyrir hvern leik til að byrja með…. refsingarnar yrðu þá bara teknar út í endann.