Frikki kom með comment við síðustu færslu þar sem hann er að spá í næsta tímabili, hvernig við viljum hafa það. Held það sé ágætt að byrja að spá í þessu og fá fram hvernig menn vilja sjá þetta þróast. Set því bara inn nýja færslu sem við getum commentað við um þetta dæmi. Það sem ég er helst að spá í er hvernig við viljum hafa æfingarnar á næsta ári, hvaða sal, hversu oft, klukkan hvað og svo framvegis. Svo hefur oft verið spáð svolítið í hversu marga við eigum að hafa í hópnum.
Persónulega (líkt og Frikki heyrist mér) er ég ánægður með þennan sal og þessa tíma. Mér finnst fínt að vera klukkan 22:00 á kvöldin. Þannig er þetta svona það síðasta sem maður gerir á daginn og ekkert annað að þvælast fyrir þ.a. maður á að geta mætt á æfingarnar. Ég er svo á þeirri skoðun að við ættum að reyna að vera alveg 13-15 í hóp því það komast aldrei allir á allar æfingar og leiki þ.a. það er fínt að hafa smá buffer á þessu til að geta verið nógu margir og svo er ekki verra að því fleiri, þeim mun ódýrara er þetta per mann. Hvað segiði, hvað finnst ykkur?
7.07.2008 at 13:22
Ég er sammála Óla að öllu leyti… sérstaklega með að fjölga mönnum… mér heyrist við strax vera búnir að semja við Sigtrygg sem var free agent… en ég vill líka láta vita strax að ég verð í kvöldskóla í september og október og hann verður líka stundum um helgar þannig að ég held að tímabilið mitt byrji ekki fyrr en í nóvember.
7.07.2008 at 18:06
Ég er einnig sammála þessu öllu saman. Hugsa samt að það gæti komið upp leiðinleg staða ef það kæmi einhverntímann upp að allir 15 manns mundu mæta í leik. Hverjir eiga að víkja í þeim leik? En eins og Óli segir, það á eftir að vera mjög sjaldgæft. Mér finnst æfingatíminn mjög fínn, þe kl. 22-23 alla þriðju- og fimmtudaga.
Ps. Leiknir er búið að samþykkja að leyfa okkur að mæta á æfingar með sér í sumar. Fimmtudögum kl 21:00 í Fylkishúsinu (við Árbæjarlaug) Ég ætla allavega að reyna mæta eitthvað, væri gaman ef einhverjir fleiri sæju sér fært að mæta. Við mundum bara borga hluta á móti þeim í salnum.
7.07.2008 at 18:09
já vá þið hefðuð átt að sjá mig og popparann á æfingu hjá leikni, við sýndum glæsilegt og spil og kenndum þeim að það er ekkert “i” í lið… en hvernig er það Arnar, ertu orðinn pabbi??
7.07.2008 at 20:05
Nei þetta barn ætlar aðeins að láta bíða eftir sér. Hulda var sett í gær þannig að það er kominn 1 dagur yfir.
8.07.2008 at 19:57
Líst vel á að spila áfram í Kársnesskóla og á sama tíma. Ég held að lukkutalan 13 sé helvíti góð í leikmannahóp fyrir veturinn. Það eru að minnsta kosti 2-3 Hólmarar sem eru að koma í bæinn í skóla og eru meira en til í að koma á æfingar þegar vantar, þannig að ég efast um að það verði vandamál. Það bara verður að taka grjóthart á því þegar menn komast ekki á æfingar og láta ekki vita nógu fljótt eða bara láta ekki vita neitt. Enda eru ákvæði í leikmannasamningunum sem verið er að gera (loksins loksins) um það hvernig menn eiga að haga sér í kringum æfingar og leiki. Og það verða sektir ef menn eru óþekkir. En ekki kvarta út af því. Ef menn asnast til að verða sektaðir þá fer peningurinn beint í skemmtanasjóðinn.
Og áfram Hulda! Drífa sig að verpa!
9.07.2008 at 18:18
Arnar
Hjalti
Óli
Hemmi
Laugi
Hrannar
Höddi
Reynar
Frikki
Jakob
Suddi
Er þetta ekki leikmannahópurinn eins og hann lítur út í augnablikinu? þetta eru 11 manns. Held við þurfum amk að bæta við 2 í hópinn, svo væri djöfull gott ef við gætum verið með 2-3 í viðbót sem væru til í að mæta á æfingar hjá okkur. Uppkast af leikmannasamningnum er kominn í [reglur og sektir] fyrir menn að skoða. Athugasemdir verða teknar til greina án loforðs að verða við þeim.
10.07.2008 at 11:08
Já, ég er á því að þurfi allavega að bæta tveimur við þennan lista. Væri ekki sniðugt að tékka á þeim sem eru þarna listaðir hvort þeir séu ekki pottþétt með á næsta ári, þá væri hægt að gera ráðstafanir strax varðandi nýja leikmenn til að ná nógu stórum hóp. Ég skal athuga með Jakob og Hrannar.
10.07.2008 at 14:00
Frikki, athugar þú með Hödda? og Hemmi þú athugar með Reynar.
Þarf nokkuð að tjékka á einhverjum fleirum? þetta er hópurinn sem hefur alltaf verið. Er nokkur að fara hætta? Laugi?
10.07.2008 at 14:11
Neineinei, enginn er að fara að hætta. Trúi því ekki, skoðið bara þetta.
10.07.2008 at 14:41
Ég fer á sjó i mánuð og á frí í mánuð, þannig að augljóslega er ekkert hægt að nota mig þann mánuð sem ég er á sjó, ég borga samt sem áður fullt gjald eins og aðrir.
11.07.2008 at 20:13
jæja drengir ég er að spá í að gera eins og þið í vetur. Ég verð áfra hérna á klakanum, ég er víst að verða pabbi! Fæ ég að spila með í vetur?
12.07.2008 at 20:31
haha þorir enginn að commenta á Kjartan? Til hamingju með það… Frikki, Laugi og co. þið skulið passa ykkur, þetta er bráðsmitandi! Auðvitað verðurðu með þá. Eina sem ég er að pæla í að það er voðalega lítið eftir af búningum minni en XXL. Númer hvað var 5-an? og hver er með hana by the way?
13.07.2008 at 17:05
Það er nú ekkert að þora, menn kannski lítið að skoða þetta um helgar nema netnördar eins og við. Til hamingju með þetta Kjartan, gaman að þessu. En ég man ekki hver er númer 5.
13.07.2008 at 22:39
Til hamingju Kjartan. sammála með æfingatímann og ég er klár fyrir tímabilið.
14.07.2008 at 12:42
Til hamingju Kjartan.
Allt að verða klárt hérna meginn.
Væri samt frekar til í að hafa æfingar frá kl. 21:00.
14.07.2008 at 16:30
Djöfull commenta ég oft. En anyways … varð að sýna ykkur þetta, held að Axel sé alveg maður í að meika það í þessu.
14.07.2008 at 17:58
Svona verður tímabilið hjá Brokey! ekkert nema troðandi andskotar! Ég athuga hvaða tíma við fáum á þri- og fim- dögum í vetur. Seinast var bara þessi kl.22 tími laus en ég athuga það svona hvað á hverju. Persónulega er mér alveg sama, kannski fyrir utan það að meistaradeildarleikirnir eru ekki búnir kl 9 á þriðjudagskvöldum. Ég athuga allavega tímana og við sjáum hvað er í boði. Þessi 12 manna hópur er þá klár. Spurning um að einhver reyni að finna einhvern stóran til að vera the 13th Brokey-ingur!
14.07.2008 at 21:25
Gauta langar að vera með í vetur ef það er í boði. Það er óljóst samt með hvar hann verður í vetur, hér/útlöndum/útálandi/annarsstaðar en hann er til í að borga samt alveg og fá að vera með þegar hann er við. Hvað segja menn um það? Persónulega finnst mér betra fleiri en færri. Bara svona að fenginni reynslu undanfarinna ára þar sem við höfum yfirleitt byrjað 12-13 en endað 6-7.
15.07.2008 at 17:26
Er ekki málið að suða í Árna Ásgeirs? Hann er að fara í skóla í bænum. Bölvuð peningaeyðsla að fara í Hólminn í fleiri fleiri leiki og ekkert sprikl þess á milli. Gáfulegra fyrir hann að eyða 30.000kr. í tvær æfingar á viku í heilan vetur plús 14 leiki eða svo, sem verða langflestir í Reykjavík. Árni er stór og hraustur baráttuhundur sem við höfum verið að leita að. Það er mitt álit.
16.07.2008 at 21:21
Ég held að Höddi verði ekki með þannig það væri sterkur leikur að redda stórum leikmanni… Ekki mikið vit í því að vera að láta mig spila þarna undir… þar sem ég er ekki góður í því og nenni því heldur ekkert rosalega…. En ef við reddum Árna þá væri það mjög gott.
17.07.2008 at 10:24
Hemmi staðfestir að Reynar verði með í vetur. Þá erum við orðnir 12 með Gauta aftur. Hjalti þú suðar í Árna og hann fær #14 sem Jói var með. Þá held ég að hópurinn sé bara klár. Svo auðvitað ef þið fréttið af einhverjum stjörnuleikmanni þá held ég að við verðum að skoða það.
17.07.2008 at 10:55
Held að Frikki hafi verið eini úr Stjörnunni sem við höfum áhuga á
. Aaaaa þessi var slappur.
17.07.2008 at 11:22
Ég held að það sé ekki til nógu mikið af klósettpappír í Reykjavík til að skeina Óla núna. Sjaldan hafa menn skitið eins illa í buxurnar með húmor og í þetta skipti. Það er aukarúlla á leið í pósti frá mér Óli. En já það eru þrjú lið á eftir Árna: Mostri, Brokey og Fjölnir. Bárður er víst að suða í Árna. Hann veit að dyrnar standa opnar hjá okkur og hann lætur vita um leið og hann hefur ákveðið sig. Um að gera svo að hafa augu og eyru og jafnvel buxnaklaufar opnar fyrir góðum leikmönnum. Sérstaklega háxöxnum andskotum. Eins og Frikki segir, það þýðir ekkert að hafa hann grenjandi þarna undir.
Ég get ekki beðið eftir að byrja að æfa.
17.07.2008 at 19:36
Hjalti, ég finn nú bara skítalyktina af þér hingað í Reykjvavík…. Mér fannst hins vegar brandarinn hjá Óla alveg top class, eins og bretinn segir…. Óli ég held að Hjalti sé bara öfundsjúkur af því að þú komst með þennann brandara á undann honum.
18.07.2008 at 10:36
I say…..
18.07.2008 at 21:00
Good Show, Governor….
20.07.2008 at 00:49
Ef ekkert annað er laust þá höldum við allavega þessum 2 æfingatímum sem við höfðum í fyrra. Kemur í ljós í byrjun ágúst hvort eitthvað meira/annað sé laust. Tíminn hækkar örugglega upp í 4.500 (var 4.000), bara svona svo þið vitið það.
ps. Hulda verður sett af stað kl.21 annað kvöld þannig að þetta barn hlýtur að koma fljótlega eftir það!