Sælir félagar.
Maður verður að reyna koma þessu frá og klára fyrir árshátíðina sem verður að öllum líkindum á næstu helgi, 27-28 júní. Eins og ég hef commentað á þá býst ég ekki við að mæta þar sem barnið gæti farið að detta inn (út) á hverri stundu. En þekkjandi skemmtinefndina er ég ekki í neinum vafa um að hátíðin verður glæsileg. Hjalti vantar þig ekki vídjó af einhverjum leikjum til að geta gert samantektarvideo? ég á nokkra leiki síðan síðasta vetur. Held reyndar að það eigi ennþá eftir að taka einhverja tölfræði síðan á tímabilinu.
Upprifjunin heldur áfram (2og3/3)
- Lánsmaðurinn Axel kom inn í liðið og skilaði 0/3 og 1 frákasti. Minnir mig að þjálfarinn hafi ekki spilað honum mikið. Þetta var skyldusigur en það var ekkert útlit fyrir annað en tap í hálfleik og andlaust lið Brokey var undir 35-27. Hrannar með stórleik 19 stig og 11 fráköst hjálpaði liðinu að skila sigri og eftir töluvert ströggl endaði leikurinn 69-61 og Brokey með 4 sigra og 2 töp og var við topp deildarinnar í fyrsta skipti í sögunni.
- Næst var síðan háspennuleikur við ÍA í Austurbergi. Brokey voru vel stemmdir í leiknum og það að hafa Mostra á vellinum við hliðina ýtti enn frekar undir baráttuandann. Sveiflukenndur leikur þar sem Brokey leiddi fyrri hálfleikinn 42-34 eftir að hafa verið með 5-9 stiga forystu allan hálfleikinn. 3ji leikhlutinn er sá erfiðasti fyrir okkur virðist vera og það var enginn breyting á í þessum leik, tapaðist 14-27 og forystan farinn og rúmlega það. Eftir mikla spennu í 4. leikhluta og einhverjar umræður við ritaraborðið stóð Brokey uppi sem sigurvegari 80-79. Brokey að toppa töfluna og 5 – 2 sigurhlutfall var draumi líkast.
- UMFH – Brokey á Hellu. Leikur sem ég veit voðalítið um, enda ekki á honum vegna utanlandsferðar. Skildist að Óli hefði skorað 37 stig sem er met hjá Brokey. Leikurinn tapaðist 105-79. Þið ræðið þetta bara betur á árshátíðinni.
- Þá var komið að því að hefna ófaranna síðan í fyrri umferðinni móti HK. Brokey mætti með “fullmannað lið” sem um þetta leyti var orðið þetta 6-8 menn þar sem meiðsli og annað var farið að segja til sín í hópnum. Eftir gríðarfjörmikinn 8-8 1. leikhluta tók Brokey við sér og staðan 41-27 í hálfleik. HK átti aldrei séns gegn góðri vörn og enduðu leikar 82-59. Óli 22 og Frikki 21 stig. Duglegir strákar þar á ferð. Ég var farinn að sakna Hjalta í Ungverjalandi en greinilega enginn annar. Já alveg rétt, ég tók 11 fráköst í leiknum, nei ég sakna Hjalta ekki neitt!
- 900km ferðalag takk fyrir á einum degi. Þetta er auðvitað bara rugl. Á Dalvík var farið á 2 bílum og sumir sváfu meira en aðrir. Sem betur fer vannst sigur 87-70 og Óli með 30 stig og 19 fráköst. Þú mátt sofa á leiðinni í alla leiki ef þú skilar svona frammistöðu. Hrannar með fínan leik líka og fínan LEIK líka! áiiii öxlin!
- Seinni leikurinn við Leikni á þjóðarleikvanginum var alls ekki eins og menn höfðu vonað. Aðeins 7 menn mættu og þá flestir frekar seint. Gjaldkerinn á klukkunni og hafa menn ekki heyrt jafnmikið væl í langan tíma. Ekki mikið hægt að segja og ekki til nein tölfræði. Leikurinn tapaðist 69-82 sem var síst of stór sigur. Lélegast leikur Brokey í vetur vil ég meina. 7 unnir 4 töp og úrslitakeppnin var horfinn af borðinu.
- Síðast leikur tímabilsins gegn Árvakri. Sama sagan, enginn tölfræði til en leikurinn vannst 63-57. Hitti ekki einhver frá miðju í þessum leik? alveg minnir mig það!
Heilt á litið langbesta tímabil Brokey hingað til. 8 sigrar er samtala sigra öll hin tímabilin (eða næstum því). Það sem er helst svekkjandi er að tímabilið hefði getað verið ennþá betra með aðeins meiri heppni í meiðslamálum og aðeins meiri áhuga þegar leið að lokum tímabilsins.
Plenty af hlutum sem við getum tekið með okkur inn í næsta tímabil. t.d. að hafa 2 æfingar í viku! Stækka leikmannahópinn upp í 13-14 manns því það mæta aldrei allir í leiki og með stærri hóp eru æfingarnar líklegri til að verða betri. Ekki hleypa mönnum eftir kærustum til útlanda! Ráða sjúkraþjálfara því þetta var orðið alveg ótrúlegt með meiðsli manna á tímabili! Brokeybasket.com up and running! Þeir sem eiga eftir að skila profile geta skilað hvenær sem er til Óla, já eða sett hann sjálfir inn ef þið kunnið það.
Held þetta sé komið gott. Gangið hægt um gleðinnar dyr um næstu helgi á síðustu drykkjuhelgi sumarsins því æfingabúðirnar byrja strax í byrjun Júlí.
Leider
Popparinn
23.06.2008 at 18:20
Frábært yfirlit Poppari. Gaman að lesa þetta.
23.06.2008 at 19:14
Sammála… gaman að rifja upp seasonið.
24.06.2008 at 15:06
Sælir félagar, ef það er í lagi ykkar vegna þá hefði ég alveg áhuga á því að taka fram skóna að nýju, veit að Hjalti er á móti því.
24.06.2008 at 16:48
djofull ertu orðinn gamall Sigtryggur, veist greinilega ekki að það eru longuhætt að spila í skóm.. alveg í lagi mín vegna að þú komir aftur í stórveldid.. En annars strákar þá er árshátíðin núna næstu helgi, ekki en ljóst hvar við verðum samt en miklar líkur á því að við verðum að setja upp tjaldbúðir… búið er að ákveða að vera með litaþema á djamminu (rautt og bleikt er málid).. verður svipað og fyrri ár, spiladur smá bolti, drive keppnin fræga og brjáladur fyllerí… en um að gera melda sig sem fyrst með mætingu strákar… en við vitum ekki en hvar við getum verið þannig að svefnpoki og tjald er málið í dag.. Og Poppari, ánægdur með þessi yfirlit..
26.06.2008 at 18:01
I am game for the annual BBC festival… i am also game for Sigtryggur to re-join the great empire that is Brokey.
28.06.2008 at 18:55
jæja strákar föstudagurinn fyrir árshátíðina var fínn, (reyndar búnir að breyta þessu í bara fyllerí þar sem mætingin er svo afspyrnu góð):) ég the old daddy, frikki fantastick who bleeds prescious, Kjartan the danish pornstar og Hjalti the new cool daddy tókum pöbbaröltið á þetta svona uppúr miðnætti og það stóð ekki lengur en til eitt vegna þess að þá var bara lokað….frábært framtak… Þá var Hjalti líka orðinn þreyttur pabbi og fór heim en me and my brother and his sister fórum þá bara í vel kaldan heitapott sem varð ekki heitur fyrr en við fórum ofaní ásamt nokkrum dömum og verð ég að segja að það hefur aldrei verið svona mikið að kvennfólki á brokeyjardjammi….ójá ég sagði það!!!
3.07.2008 at 16:28
Líst vel á að Sigtryggur taki fram skóna. Því fleiri því betra að mínu mati. Hann er líka örugglega með fáránlega mikið sjálfstraust nú þegar Celtics hafa brotið ísinn.
5.07.2008 at 21:25
hey ég er með spurningu… hvenær vilja menn hafa æfingar á næsta seasoni… og eru menn ánægðir með þennann sal eða vilja þeir redda nýjum… persónulega er ég ánægður þarna.