Sælir félagar
Ég byrjaði að skrifa comment en svo nennti ég því ekki. Skuldararnir hafa gert hreint fyrir sínum dyrum og vonandi verða þau mál leyst á allra næstu dögum. Alltaf leiðinlegt að vera leiðinlegi gaurinn að rukka alla, en… vonast til að sjá þessa leikmenn í hópnum á næsta ári og þá heila heilsu og í góðum fíling!
Ég bætti aðeins við reglur og sektir flipann og hef gert uppkast að leikmannasamningi. Spurning um að lögfræðingurinn í liðinu lesi hann yfir og vouchi hann. Verðandi tölvunarfræðingurinn getur kannski sett hann betur upp fyrir mig og gæðastjórinn farið yfir. Þetta verður alveg bullet-proof.
Ef ég tek saman síðasta tímabil mundi það hljóma um það bil svona: (1/3)
Hópurinn byrjaði sterkur og 2 æfingar í viku virtust ætla koma hópnum í ágætt leikform. Hrannar byrjaði tímabilið með 5 villum, var nokkuð ein tækni? man það ekki.
ÍA - Brokey 106-88.
Næst unnum við UMFH í framlengdum leik 86-81 þar sem Óli bakarans sat á leikklukkunni. Var hann ekki meiddur eftir slagsmál í miðbænum?
Næst mætti smávaxið lið Brokey (fyrir utan Óla) hlunkunum í HK. Það að þeir tjölduðu í teignum og léleg strategy-a þjálfarans (sú eina á tímabilinu, vill meina að það hafi verið vegna þess að hann hálfvilltist í Kópavoginum) kostaði okkur þann sigur. Leikur sem hefði átt að vinnast, tapaðist 82-71.
Við áttum harma að hefna gegn Leikni sem hafði farið ílla með okkur tímabilið á undan. Ekki byrjaði það vel… 28-20 undir eftir 1. leikhluta. Í öðrum og þriðja leikhluta skellti Brokey í lás með geðveikri svæðisvörn og lengi vel stefndi í stórsigur þar sem Brokey leiddi með allt að 29 stigum. Úrslitin hins vegar 90-77.
Dalvíkingar kíktu í bæinn. Það verður að segjast að þeir voru með slakasta liðið í riðlinum þetta árið (Sæti sem Brokey hefur átt í gegnum árin) Tíðindalítill leikur sem vannst mjög örugglega 76-48 og Brokey með 3-2 vinningshlutfall og nettó stigaskor réttu megin við núllið.
Þetta er nóg í bili. Framhald væntanlegt!
Leider
Popparinn
16.06.2008 at 23:13
Ég á engan svona banner með mér á eins og Hemmi. Sorry!
17.06.2008 at 17:25
Góður pistill Arnar, hlakka til að lesa 2. og 3. hluta…. En Hemmi ég vona að þú fyrirgefir mér hve lengi ég er að svra þér…. En ég elska þig (Hemma) líka alveg rosalega mikið
17.06.2008 at 18:52
Ég er núna bara ð prófa…. ég var að prófa mig að skrá mig inn í þetta wordpress dæmi hans óla…. er að gá hvort það komi mynd.
17.06.2008 at 23:14
Mér greinilega hálfleiðist og er orðinn furðulega spenntur fyrir næsta tímabili svona snemma! Var að update-a [tölfræði]síðuna, þe. met leikmanna. Einnig bætti við sögu félagsins í grófum dráttum í [um félagið]
Fann líka þessa fínu mynd til að setja í profile fyrir wordpress. Rvk meistarar Brokey árið 2005!
18.06.2008 at 00:48
Gaman að fá svona yfirlit yfir síðasta tímabil, góður Poppari. Líka ánægður með svona hörku í uppfærslum á síðunni, greinilega ekkert að gera meðan menn bíða eftir NBA.
En hver er tölvunarfræðingurinn? Býst við að ég sé gæðastjórinn og svo er náttúrulega JJ eini lögfræðingurinn á svæðinu sem ég veit um.
18.06.2008 at 01:02
Hermaurinn/coach lefty/Klámvels ætlar að skella sér í tölvurnar í HÍ í vetur!
18.06.2008 at 01:03
Það þarf greinilega að vera loggaður inn til að myndin skili sér hérna inn. Gaman að því!
18.06.2008 at 21:54
Jæja eigum við að fara festa tíma á þessari árshátíð?
19.06.2008 at 23:51
Seinasta helgin í júní!
Það er nokkuð öruggt.
20.06.2008 at 01:10
sem sagt 27. eða 28. júní?….. Hvar?… Hvenær?…. Hvert er Þemað? Vitandi það að Hjalti er mikill Þema maður… Er mökum boðið?….. Og hverjir sjá sér fært að mæta?
20.06.2008 at 21:52
Ég held ég mæti ekki. Enda er ég kominn í áfengisbann og allir vita hvað ég er leiðinlegur Edrú!
20.06.2008 at 22:29
Þetta kemur allt í ljós á næstu dögum hvar og hvenær. Hemmi kemur á sunnudaginn og þá ætlum við að halda fund og allt verður ákveðið. Ef enginn staður finnst þá er bara málið að leigja Verkalýðshúsið eða eitthvað álíka, kannski Golfskálann.
Við Hermaur komum með tilkynningu þá að öllum líkindum á mánudag eða þriðjudag, en hátíðin verður 100% á næstu helgi.
21.06.2008 at 11:17
Óli!! hvað er í gangi hérna? afhverju eru öll commentin ??:06!! þetta getur ekki verið tilviljun!
21.06.2008 at 14:39
uss…þetta er spennandi. Hvernig skemmtinefndin getur haldið öllum BBC-liðum (gömlum sem recruited) í heljargreipum. Þvílík spenna og rafmagn í loftinu að perrur springa hér í götuljósum danmerkur.
En er ánægður með að ef þið haldið hátíðina næstu eða þar næstu (fyrstuhelginaíjúlí). Veit að Axel er að vinna næstu helgi, en ég ætla að reyna að troða mér…tel að einu sinni skáti ávalt skáti eigi einnig við um BBC-liða
21.06.2008 at 22:13
Já sælir félagar… vonandi verð ég kominn heim núna á næsta fimmtudag eða föstudag, og á ekki að byrja vinna fyrr en á sunnudag á næturvakt.. þannig að ég er heitur teitur djeng……
21.06.2008 at 23:02
Haha, já rétt hjá þér Arnar. Þetta var smá vitleysa hjá mér, búinn að laga þetta.
Reyni náttúrulega að mæta á hátíðina en lofa engu.