
Ójá löngu kominn tími á mig, enda rignir upp í nefið á mér og er ég víst líka mannhelvíti…. svona þykir besta vini mínum vænt um mig. Jújú viðurkenni það að ég hef lítið látið í mér heyra, enda lág ég undir feld þegar allt var á fullu hjá einu af úrvalsdeildarfélögunum í körfubolta að ráða nýjan þjálfara. Get sagt frá því núna að það voru aðilar sem töluðu við mig og er það ekki skrítið þegar er litið er á árangurinn hjá Brokey núna seinasta tímabil…oh yeah. Ég ákvað eftir langa umhugsun að taka ekki tilboðinu enda erfitt að slíta sig frá bbc þar sem ég er einn af stofnendum þessa myndarlega félags. Þið getið því andað léttar strákar ég er ekki á förum. Og svo til að vera með leiðindi en samt ekki, þá finnst mér það ömurlega lélegt og hreinn dónaskapur að vera ekki búinn að klára að borga, þið sem eigið eftir að gera það… það er varla gaman þegar einn aðili stendur yfir öllum kostnaðinum frá upphafi tímabils og þarf síðan eltast við það að vera ennþá rukka þegar tímabilið er löngu búið!! Þið eruð fullorðnir menn Strákar!! Það verður tekið í algjöra naflaskoðun hvernig við tökum á kostnaðinum fyrir næsta tímabil, þetta gengur ekki svona og hefur varla gengið þau tímabil sem við höfum tekið þátt. Ekki er enn komin dagsetnig á árshátíðina en staðsetningin er komin… en hátíðin þarf að gerast fyrr en seinna, tel það líklegast að ég og Hjalti festum e-h dagsetningu fljótlega. Það verður engin breyting á venju árshátíðarinnar nema það kannski að mér finnst að þjálfarinn ætti að vera verðlaunaður sértstaklega fyrir bættan árangur á hverju tímabili og það mætti líka verðlauna hann fyrir mestu framför í þjálfarastólnum…heyrheyr.
laters vinir, ég elska ykkur alla.. sérstaklega þig frikki!!
Þjálfi
9.06.2008 at 17:16
andsk. vantar myndina, þetta er nefnilega svo djöfulli heit mynd. Þið getið samt tékkað á henni hérna ef þið eruð æst/ir í kallinn…. http://www.decodeme.com/index/publications
9.06.2008 at 21:20
Shiiiiiiit!
Djöfull er Maurinn fallegur á þessari mynd. Ég er sammála Hemma með það að það er lélegt að borga ekki. Ég er reyndar búinn að vera allt allt allt of lengi að borga draslið en það er loksins komið og biðst ég velvirðingar á því. Gjaldkerinn mætti jafnvel reikna einhverja vexti á þessa greiðslu ef hann vill og skal ég glaður borga þá. Til dæmis þá spilaði ég nánast ekkert með seinni helming tímabilsins en borgaði samt mitt og finnst það sjálfsagt. Ég sagði í byrjun tímabilsins að það ætti bara að gera samninga. Þar sem menn skrifa undir að þeir borgi allt tímabilið þó þeir missi af einhvern part tímabilsins vegna meiðsla, utanlandsferða eða út af einhverju klámi (eins og barneignum, sem ég er að fara að lenda í í desember). Það er að minnsta kosti mitt álit. En þetta verður eflaust skeggrætt í næsta BBC partýi. Ég er að fara að sjá vaktaplanið mitt á morgun og sé þá hvaða helgar ég er í fríi og þá verður planað partý. Þá hóar maður í skemmtinefndina, lyfti upp símtólinu og öskra: “SKEMMTI! SKEMMTI! SKEMMTI! SKEMMTINEFND! HÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓÓ!” þá birtist ljós á himnum af nýja BBC logoinu sem Frikki og ég höfum verið að skoða og þróa saman og þjálfarinn hefur einnig séð það og leist vel á. Nóg um það.
Áfram Brokey.
Og Hemmi, ég elska þig mannhelvítið þitt!….og alla hina líka.
10.06.2008 at 08:01
You´ve got the love Hjalti… já ég held að svona samningur sé málið, hlakka til að skeggræða það í næsta partýi.
Ójá áfram Brokey
10.06.2008 at 09:44
Lagaði myndina, vúhú. Djöfull er þjálfi getnaðarlegur alltaf.
Eina vitið finnst mér að borga bara strax í upphafi tímabils fyrir það sem þetta kostar. Það er þá bara nokkurs konar staðfesting á að vera með. Ef þú borgar ekki strax þá ætlarðu ekki að vera með, og þá þarf bara að finna einhvern annan. Ómögulegt að hafa þetta svona. Við ræddum þetta aðeins við gjaldkerinn yfir glasi á föstudaginn, fórum svo að fletja kellingar í Súgandisey. Mjög gaman.
10.06.2008 at 10:11
Takk fyrir Óli. Getnaðarlegur..jú ég get tekið undir það. Borga strax er auðvitað eina vitið. En fletja kellingar! djöfull eruð þið orðnir gamlir….
10.06.2008 at 10:21
Þetta var svona sýru-eitthvað. Án sýru reyndar.
En svo vildi ég bæta við að ég er hrifinn af logo-vinnslu. Vantar alveg að fá almennilegt tákn brokeyjarinnar. Alltaf verið að biðja mann um þetta.
10.06.2008 at 10:22
vó…segi ekki annað…þú værir að raða inn stigum ef þú hefðir þessa mynd á einkamála prófílnum þínum hemmi…
10.06.2008 at 20:53
Ég er í fríi helgina 27.-28. Veit ekki hvort ég verði einn heima þá. Hvar eigum við að hafa partýið ef ég er ekki einn heima?
Kjallaranum hjá Coach Pretty?
11.06.2008 at 10:11
Eitt gott fyrir hjalta15 sem á von á barni sýnist mér, til hamingju með það:
http://youtube.com/watch?v=I_o_QlyyVIo
Og textinn mjög góður líka:
http://www.lyricsfreak.com/p/prefab+sprout/the+king+of+rockn+roll_20110479.html