Já! Kominn tími á að ég setji svip minn á þessa síðu. Ekki andlitssvip, við viljum ekki að þessi síða fari í 18+ flokkinn.
Eins og ALÞJÓÐ veit þá er Brokey nánast reyklaust lið. Fyrir utan einhverja svarta sauði “sem reykja bara á fylleríum” my ass. Þeir taka þetta til sín sem eiga. Og við sem mikið bindindislið á reykingar og áfengi (WHAT?!) þá finnst mér alveg kominn tími á smá forvarnarstarfsemi, enda unglingaflokka starfið og minniboltinn hjá félaginu á fljúgandi siglingu….enda siglingafélag! Púmm Tiss…ooooog gubba! 
Tékkið á þessari auglýsingu. Hún verður komin í Moggann og DV á næstu vikum. Leyfi ykkur að sjá hana fyrst. Þvílíkur heiður! En svona áður en ég skrifa meira og drep alla úr leiðindum og þar með talið sjálfan mig, eru menn eitthvað heitir fyrir BBC-hátíð í Hólminum um miðjan júní? Ég verð að öllum líkindum einn heima þá einhvern tímann, en ég læt vita þegar ég veit meira. Æði!

Thank you for smoking!