Sælir Brokeyingar,
Vil byrja á því að þakka Óla fyrir þrotlausa vinnu með nýju síðuna okkar, persónulega finnst mér hún miklu miklu flottari en þetta blogcentral drasl. Nú er bara um að gera að allir læri nokkurnveginn á hana svo við getum haft hana vel uppfærða og flotta. Fáum Hjalta tilbaka aftur í vor og þá vonum við að ný video líti dagsins ljós, nema einhver annar bjóði sig fram um að búa til video, þá er ég með alla nýjustu leikina okkar inná tölvunni. Bara hafa samband.
Ég var að henda inn tölfræðinni úr leikjunum við HK og Dalvík og auðvitað nýja meðaltalið. Þið skoðið þetta undir tölfræðiflipanum hérna að ofan. Þetta voru auðvitað 2 sigurleikir og vil ég nú meina að í leiknum við HK hafi Brokey spilað sína bestu vörn í allan vetur. Gjörsamlega lokuðum á allt sem þeir reyndu að gera og ekki skemmdi síðan fyrir að þeir voru sjálfir að reyna taka svæðisvörn á okkur en voru bókstaflega skotnir í kaf, þeas af öllum nema mér, en mér tókst að setja ekki 1 stig í þeim leik.
Ferðalagið til Dalvíkur var ágætt, eins gott að vinna leik sem kostar ferðalag frá 7 á morgnana til 10 á kvöldin. Reyndar fengu sumir að sofa meira en aðrir. Við rétt sluppum við veginn sem fór í sundur í norðurárdalnum, sem hefði kostað 20 mínútna detour. Ekki á þessa 9 tíma keyrslu bætandi! Leikurinn í Dalvík vannst aðallega á því að þeir voru lélegri en við, án þess að við höfum getað nokkuð. Skelfileg skotnýting!
Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir: Það eru ennþá flestir sem skulda mér æfingagjaldið fyrir vorönnina. Vinsamlega gerið upp við fyrsta tækifæri þar sem ég er búin að borga allan pakkann og væri alveg til í að fara fá peninginn tilbaka
Þetta er 10.000 fyrir vorönn og 15.000 fyrir haustönn, ennþá einn sem skuldar það, hann veit af því. Reikningsnúmer er undir [um félagið] flipanum.
Við virðumst ekki ætla fara varhluta af meiðslum í vetur:
Hrannar: Axlarmeiðsli - endurkoma óviss
Hörður: Uppskurður á einhverju - frá út tímabilið
Jakob: Olnbogameiðsli - Endurkoma óviss
Hjalti: Útlandasýki - frá út tímabilið
Kjartan: Ökklameiðsli - endurkoma um daginn!
Arnar: Ökklameiðsli - endurkoma óviss
Vonum að þessi listi lengist ekki og einhverjir verði komnir tilbaka fyrir sunnudaginn. Eins og sést hérna hægra megin er hann móti Leikni R og verður leikinn hvorki meira né minna en í laugardalshöllinni. Báðir þessir leikir sem eftir eru eru úrslitaleikir og verðum við að treysta því að ÍA misstígi sig svo að við fáum sæti í úrslitakeppninni.
Boða hér með forföll á æfinguna annað kvöld. Kem kannski að horfa á.
Leider
Popparinn
6.03.2008 at 10:53
Koma strákar, borga borga. Leiðinlegt að þurfa að láta gjaldkerann leggja út fyrir þessu.
Mæti í kvöld.
6.03.2008 at 11:54
Óli góður! rukkar fyrir mann, bætir inn linkum í pistilinn og setur inn prófælinn sinn! og það allt á einum degi. GLÆSILEGT!
6.03.2008 at 15:08
Ég mæti í kvöld!!
6.03.2008 at 18:13
mæti..
6.03.2008 at 18:57
Ég mæti og reyni að taka einn með mér.
6.03.2008 at 21:14
mæti