Sælir félagar og velkomnir á nýja síðu Brokey Basket Club. Þar kom loksins að stóru stundinni, þetta er nú búið að vera í farvatninu í einhvern tíma. Ég er búinn að setja megnið af dótinu sem var á hinni síðunni sem eitthvað var varið í en það er ekki allt komið ennþá þannig að þið verðið að sýna smá þolinimæði með það. Skoðið ykkur um og látið mig vita ef ykkur finnst mega breyta einhverju, bæta við eða eitthvað, getið t.d. sent mér mail á olafur.g@gmail.com.

Ef ykkur langar til að geta skrifað hérna, sem er guðvelkomið, þá verðiði bara að fara inn á www.wordpress.com/signup og búa til notandareikning fyrir ykkur (velja “Just a username, please.” í skráningarferlinu). Svo sendiði bara á mig hvaða notandanafn þið eruð með netfang þið skráðuð og ég gef ykkur aðgang. Ekki flókið dæmi. Ég á von á því að Arnar Logi komi með eins og eina grein áður en langt um líður, hann og Hjalti #15 eru komnir með reikning nú þegar.

Annars er næsti leikur hjá okkur 9. mars í Höllinni gegn Leikni R. eins og sést hérna hægra megin og þá er æfing í kvöld. Verður ekki fín mæting eða?