Sælir, ég veit að þessir ætla að mæta í kvöld =
Hemmi K
Kjartan
Frikki
Kiddi
Arnar
Reynar
Laugi
Addi P
en hverjir verða fleiri er spurningin!!
c´mon guys meldið ykkur sem fyrst.
21.04.2009
Sælir, ég veit að þessir ætla að mæta í kvöld =
Hemmi K
Kjartan
Frikki
Kiddi
Arnar
Reynar
Laugi
Addi P
en hverjir verða fleiri er spurningin!!
c´mon guys meldið ykkur sem fyrst.
16.04.2009
Sælir,
Ætlar einhver að mæta á æfingu í kvöld?
14.04.2009
Sælir,
Hverjir ætla mæta á æfingu í kvöld?
Það er mjög mikilvægt að melda sig þeir sem ætla að mæta því við verðum að geta farið eftir einhverju um hvort maður eigi að mæta eða ekki, þe. hversu margir mæti… vá hvað þetta er ílla orðað. En þetta skilst allavega!
Meldið ykkur mothafuckas!!
Leider
Popparinn
6.04.2009
Sælir,
Eins og alþjóð veit var Brokey slegið út úr undanúrslitum 2. deildar núna um helgina. 78-70 tap fyrir ÍA.
Hrikalegur fyrri hálfleikur þar sem ÍA skoraði 51 stig og náði á tímabili 20 stiga forystu. Nenni ekki að skrifa meira um þennan leik og stattið kemur inn innan tíðar.
Varðandi æfingu á morgun, þriðjudag, þá var uppi hugmynd að taka fótbolta. Hverjir hafa áhuga á því.
Vinsamlegast commentið hvort þið mætið og hvort þið viljið basket eða fótbolta.
Leider
Popparinn
2.04.2009
Seinasta æfing fyrir leikinn um helgina! Það var flott mæting seinast. Verður ekki svipað á teningnum í kvöld? Hverjir mæta og hverjir ekki?

"ohh... þarf ég endilega að mæta!" - Hjalti
1.04.2009
Jæja drengir. Þá er kominn tími á leikinn í 4 liða úrslitunum gegn ÍA. Hann verður á laugardaginn næstkomandi 4. apríl klukkan 14:30 í Kennaraháskólanum. Búinn að setja það líka hérna til hægri. Lokaæfing á morgun og svo er það bara alvaran.
31.03.2009
Flottur sigur um helgina strákar! Það væri gott að vera með góða mætingu á næstu tvær æfingar fyrir leikinn á móti Skagamönnum.
En svona til að fá það á hreint, hverjir mæta?

"Ég mæti og verð dýrvitlaus!" - Arnar Logi
29.03.2009
Sælir,
Brokey vann fyrr í dag ágætan sigur á UMF Álftanes, 78-75.
Brokey náði ágætis forystu í byrjun leiks, 15-6, en undir lok leikhlutans náðu Álftnesingar að minnka muninn og staðan að honum loknum 19-17 fyrir Brokey.
Annar leikhluti var okkar versti þar sem boltanum var kastað til mótherjanna hvað eftir annað að óþörfu. UMFÁ pressaði þá hálfan völlinn og þversendingarnar hjá Brokey lentu oftar en ekki í höndunum á þeim. Fengum á okkur 13-2 áhlaup í byrjun leikhlutans og staðan í hálfleik 36-44.
Reynar og Frikki leiddu liðið af stað í seinni hálfleik og skoruðu 15 af 21 stigi liðsins og með góðri baráttu og færri töpuðum boltum tókst okkur að snúa leiknum við 57-56 eftir 3. leikhluta.
UMFÁ náði fljótt aftur forystu í 4. leikhluta og allt stefndi í ósigur hjá Brokey. Þá var komið að Óla sögu Bakarans. Eftir 2 misheppnaðar (airball) 3ja stiga tilraunir lét drengurinn það ekki á sig fá og hélt áfram að hlaupa niður í hornin og taka þessi fríu skot. Þrjú duttu í röð og allt í einu var þetta orðinn leikur. Breytti stöðunni úr 64-70 í 73-72 og örfáar mínútur til leiksloka. Þessu fylgdi 2ja stiga karfa sitthvoru-megin á vellinum og svo auka víti hjá 7unni (sem hafði verið að skjóta 3ja allan daginn yfir leikmann #11 í Brokey) og staðan því jöfn þegar 26 sek voru eftir. Hemmi coach tekur leikhlé og við klárir á því að nýta allar 24 sek sem við eigum. Boltinn fer af stað og gengur manna á milli, svo þegar um 4 sek eru eftir tekur Frikki af skarið, splundrar vörn Álftnesinga og gefur boltann á Reynar sem setur niður auðvelt sniðskot, boltinn lak reyndar ofan í, en samt, og fær villu að auki. Honum er skipað að setja vítið ofaní og gerir það, 78-75.
UMFÁ tekur leikhlé með 3 sek á klukkunni. Fær boltann á miðjum vellinum og 7an fær boltann. Þeir taka sér hinsvegar alltof langan tíma í þetta (hafa greinilega ekki verið að horfa á Jón Arnór á föstudagskvöldið) og þó svo að tíminn fari aldrei í gang þá flautar dómarinn leikinn af án þess að þeir nái af skoti og Brokey vinnur leikinn og Nína (má skipta út fyrir annað lag) hljómar í hátalarakerfinu og áhorfendur þeysast inná völlinn til að hylla hetjurnar sínar. Brokey komið í undanúrslit bestu 2. deildar í körfuknattleik á Íslandi.
Eftir leikinn okkar voru Leiknir og ÍA að eigast við og skilst okkur að við eigum sigurvegarann í þeirri viðureign næst. Leikurinn scheduleraður á næstu helgi.
- Uppfært: Það er orðið ljóst að það verða Brokey og ÍA sem leika til undanúrslita eftir að ÍA lagði Leikni örugglega.
Leider
Popparinn
26.03.2009
Hverjir mæta og hverjir mæta ekki? Djöfull var leikurinn í gær svekkjandi!

Arnar Logi (26) mætir en Óli (26) kemst ekki. (Mynd: Séð og Sleikt)
25.03.2009
Sælir,
Nýjustu fréttir eru þær að Slobodan Subasic kann ekkert nema að skrefa í úrslitakeppnum!!
Leikurinn við UMF Álftanes (fyrsti úrslitakeppnisleikur Brokey) færist yfir á sunnudaginn kl 12. Hagaskóli er víst eitthvað yfirbókaður þarna á laugardaginn.
Þetta þýðir að Frikki getur fengið sér eins mikinn bjór og hann vill á föstudagskvöldið.
Óli, þarft þú þá að skrópa í fermingu?
Allir að mæta ferskir á æfingu á morgun, fimmtudag, og svo enn ferskari í leikinn á sunnudag.
Leider
Popparinn